Hundasýning 26.ágúst 2012

Kristari´s Atlas fékk góða dóma en dómaranum fannst vanta      
meiri brjóstkassa. Very good
Múla Týr, excellent og góða dóma
Múla Berg, excellent, 1.sæti meistaraflokki, meistaraefni
besti rakki tegundar 2.sæti, vara CACIB
Múla Tara, excellent, 1.sæti unghundaflokki, meistaraefni,
besta tík tegundar 2. sæti, vara CACIB
Múla Þruma, excellent, 2. sæti unghundaflokki, meistaraefni,
besta tík tegundar 3.sæti.
Ræktunarhópur Múla (Berg, Tara og Þruma) excellent,
heiðursverðlaun 1. sæti.
Besti ræktunarhópur dagsins, 4.sæti

Múla Akva

Í dag fór Akva frá Gunnlaugsstöðum og þá er  
síðast hvolpurinn farinn að þessu sinni.
Við óskum David og fjölskyldu innilega
til hamingju með þessa fallegu prinsessu

Hlýðninámskeið á Egilsstöðum

Nú um helgina er Albert Steingrímsson með hlýðninámskeið  
á Egilsstöðum og fóru Hjördís og Atlas á námskeiðið
Hér eru þau á námskeiðinu

Múla Móra

Í dag hitti Friðrik loks hana Móru sína
þegar hann kom að ná í hana
Við óskum honum enn og aftur innilega
til hamingju með þessa fallegu stelpu

Got Ösku og Alex 3ja ára 28. júlí

Fyrsta gotið hennar Ösku okkar varð þriggja ára í gær og óskum við hundunum og eigendum þeirra til hamingju með afmælið.
Á myndinni eru frá vinstri: Hríma, Yazmine, Bruni, Jökull, Frosti, Móri, Funi og Glóð.

Múla Saga

Í dag fór Saga heim með nýjum eigendum.                  
Við óskum  Jóa, Önnu og börnunum innilega
til hamingju með þessa flottu stelpu

Múla Ice Kiaro

Í dag fór Kiaro líka með nýjum eigendum                              
Jill og Magnús hittu loksins gullmolann sinn
Við óskum þeim Erlend og Kristjáni innilega
til hamingju með hann

Múla Kolka

Í dag kom Sigrún að ná í Kolku sína                                                  
Við óskum henni, Hreiðari og börnunum
innilega til hamingju með gullmolann sinn

Skemmtilegur dagur

Í dag efndum við Eldur loforð sem var gefið í                                  
rauðakrossheimsókn  á sjúkradeildina á
Egilsstöðum í vetur.  Eldur fékk að taka son
sinn hann Berg með sér í verkefnið.
Fólki fannst afar gaman og þó nokkrir þáðu
far í Saccovagninum.
Ótrúlega skemmtilegt og gefandi.

Múla Móra

Nú hefur síðasti hvolpurinn fengið nafnið Múla Móra                
Við óskum Friðriki Hermanni innilega til hamingju með
þessa fallegu tík.

Um Múlaræktun

Múlaræktun er staðsett á Gunnlaugsstöðum á Völlum 18 km frá Egilsstöðum.
Á Gunnlaugsstöðum búa Steindór V. Sigurjónsson og Hjördís Hilmarsdóttir og eru hundar aðaláhugamálið á bænum

Upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 557-7241 og 899-5241 og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst til icelandichusky[hja]gmail.com

Flokkar
Nýlegar athugasemdir