Væntanlegt got hjá Múlaræktun

Við eigum von á goti í endan mars!!  Múla Aska og CANCH Wolfriver´s Ice Thunder Kanuck hafa verið pöruð. 
Þau eru bæði með A mjaðmir, eru hrein af Catarac og hafa fengið excellent á sýningum.  Þau eru bæði með frábært skap.
Áhugasamir hafi samband í síma 557 7241, 899 0241 eða í hjordis@inni.is   sjá nánar í got

Væntanlegt got hjá Múlaræktun

Það er margt spennandi á döfinn hjá Múlaræktun. 
Nú styttist í að CANCH Wolfriver´s Ice Thunder Kanuck og
Múla Aska verði pöruð.
Kanuck og Aska eru bæði með A mjaðmir og frí af Catarac.
Þau eru bæði með einstaklega ljúfa skapgerð þannig við
vonumst eftir fallegum og skapgóðum hvolpum.
Tökum á biðlista án skuldbindinga.  Sími 557 7241 eða hjordis@inni.is
Árið 2011 verður ár breytinga hjá Múlaræktun og kemur í ljós
á vordögum hverjar breytingarnar verða.

Nægur sleðasnjór á Gunnlaugsstöðum

Í dag var nægur sleðasnjór á Gunnlaugsstöðum,   
nokkuð sem er ekki algengt.
Við mæðgur gripum tækifærið feginshendi.

Niðurstaða úr hlýðniprófum ársins

Við vorum að fá það staðfest að Múla Týr er stigahæsti hundur                
ársins í bronshlýðni.  Við erum afa stolt af honum og óskum Pétri
og Klöru innilega til hamingju með árangurinn.

Jólakveðja frá Múlaræktun

Við hjá Múlaræktun óskum öllum vinum og hundum 
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Bestu þakkir fyrir árið 2010

Væntanlegt got hjá Múlaræktun

Múla Aska og CANCH Wolfriver´s Ice Thunder Kanuck verða pöruð snemma árs 2011 – nánar í got

Sleðinn Vígður

Við Kolbeinn fórum með sleðann og 3 hunda upp á Fjarðarheiði í dag. 
Við vorum að vígja sleðann og það gékk bara nokkuð vel miðað við óvana hunda.

Múla Askur

Nú hefur grái rakkinn fengið heimili og nafnið Múla Askur                                         
Við óskum Elsu, Björgvin og fjölskyldu innilega til hamingju með hann

Hundasleði

Loksins eignuðumst við hundasleða               
Kominn tími til eftir öll þessi ár.
Robbi vinur okkar í Keflavík smíðaði hann
Við erum ótrúlega ánægð með hann
Nú vantar bara snjóinn..

Múla Elvis

Þriðji hvolpurinn hjá okkur hefur fengið nafnið Múla Elvis.                  
Við óskum Karítas og Herbert innilega til hamingju með prinsinn

Um Múlaræktun

Múlaræktun er staðsett á Gunnlaugsstöðum á Völlum 18 km frá Egilsstöðum.
Á Gunnlaugsstöðum búa Steindór V. Sigurjónsson og Hjördís Hilmarsdóttir og eru hundar aðaláhugamálið á bænum

Upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 557-7241 og 899-5241 og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst til icelandichusky[hja]gmail.com

Flokkar
Nýlegar athugasemdir