Múla Tara

Þessi fallega stelpa hefur fengið nafnið Múla Tara                                                
Hún mun verða skemmtileg viðbót við Múlaræktun

Hundavinir hjá Rauða krossinum

Hjördís og Eldur eru hundavinir hjá Rauða krossinum.                         
Í því felst að heimsækja fólk einu sinni í viku, fólk sem hefur
áhuga á að umgangast hunda en hefur ekki aðstæður eða
heilsu til að eiga hund.

Hvolparnir tveggja vikna

Hvolpunum fer vel fram og Aska er frábær mamma                             
Allir búnir að opna augun og þau orðin svo mannaleg
Hugsanlega tvær tíkur lausar á góð heimili
Áhugasamir hafi samband í 557 7241
eða icelandichusky@gmail.com

Siberian husky hvolpar

Hvolpagullin eru orðin vikugömul og hafa tvöfaldað þyngd sína
Nokkrar nýjar myndir á myndasíðunni.     Áhugasamir hafi samband í 5577241 

Siberian husky hvolpar

29. mars 2011 fæddust 6 hvolpar undan Múla Ösku og  CANCH Wolfriver´s Ice Thunder Kanuck
4 tíkur og 2 rakkar – öllum heilsast vel                                         
Nokkrar myndir komnar á síðuna undir myndir.
Áhugasamir hafi samband við Steindór í
557 7241 eða í icelandichusky@gmail.com

Siberian Husky hvolpar

                                                                                                                                  

Það styttist í hvolpana hennar Ösku.  Þessi mynd var tekin af
prinessunni í dag.  Sjá nánar í: Got

Námskeið og sleðahundamót á Mývatni

Frábærri helgi á  Mývatni lokið.  Tveggja daga námskeið með ítölsku snillingunum 
Monicu og Ararad.  Síðan var fyrsta Íslandsmeistaramót í 5 km sleðaakstri og
ýmsar skemmtilegar keppnir sunnudaginn 13. mars.  Nokkrar myndir frá
helginni í „Myndir“. 
Takk fyrir frábæra helgi Sleðahundaklúbbur Íslands

Tæpar 3 vikur í got

                                                                                                                                            

Það styttist í gotið hjá Ösku og hún er orðin ansi myndarleg eins og sést á þessari mynd
Áhugasamir hafi samband í icelandichusky@gmail.com eða í síma 557 7241, gsm. 899 5241.
Nánar í got.

Leitarhundurinn okkar

      Það er alltaf gaman þegar fólk er að vinna með hundana sína.
      Múla Garri stóðst B próf í snjófljóðaleit hjá BHSÍ þegar hann var
      tæplega tveggja ára gamall.
      Við erum afar stolt af honum

Viðurkenning fyrir Bronspróf

Vinnuhundadeildin mun veita stigahæstu hundum í bronsprófi 2010 viðurkenningar á aðalfundi sínum 5. mars n.k      
Múla Týr reyndist vera stigahæsti hundur ársins okkur til mikillar ánægju.            
Við vitum aðeins um tvo Siberian husky hunda  sem hafa farið
í gegnum bronsprófið,  Múla Týr og Múla Blanco Islandus.
Við erum afar stolt af þeim frændum. 
Hér eru gamlar myndir af þessum snillingum.

Um Múlaræktun

Múlaræktun er staðsett á Gunnlaugsstöðum á Völlum 18 km frá Egilsstöðum.
Á Gunnlaugsstöðum búa Steindór V. Sigurjónsson og Hjördís Hilmarsdóttir og eru hundar aðaláhugamálið á bænum

Upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 557-7241 og 899-5241 og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst til icelandichusky[hja]gmail.com

Flokkar
Nýlegar athugasemdir