Skemmtileg heimsókn á Gunnlaugsstöðum
Fimm strákar úr Svalbarðsskóla í Þistilfirði
komu í heimsókn til okkar 2. maí
Þeir voru hér á Héraði í skólaferðalagi og
hafði skólastjórinn verið í sambandi við
okkur fyrir nokkru og spurt hvort þeir
mættu kíkja hingað. Strákarnir vissu ekki
að þeir væru að fara að heimsækja husky
hunda og við vonum að þeir hafi haft
ánægju af heimsókninni.
Nokkrar myndir í „hundamyndir 2013“