Archive for mars, 2022

11 ára afmæli

Í dag eru þessi gull undan Múla Ösku       afmæli29.mars
og ISCH CANCH Wolfriver´s Ice
Thunder Kanuck 11 ára.
Taran mín fær dekur í dag og ég
óska Þrumu, Lara Craft og Eldi og
eigendum þeirra innilega til hamingju
með afmælið.

Aldursforseti Múlaræktunar

Í dag er Múla Garri 14 ára.                                                                                                    Garri 13 ára
Hann er undan Shapali´s Remembering
Romance „Rómu“ og Heimskauta Dögunar
Stormi.
Garri býr í góðu yfirlæti á Spáni.
Ég óskar honum, Ólínu og Bjössa  með
afmælið.

Afmælisdrottningar

Múla Dakoda og Múla Gæfa eru 13 ára í dag.             hvolpar apríl 2009 1203
Þær eru undan Shapali´s Remembering
Romance „Róma“ og Heimskauta Vetrar
Vindi.
Ég óska þeim og eigendum þeirra innilega til
hamingju með daginn og vona að þau eigi góð
ár framundan.
Knús til eiganda Æsis, Golu, Ivans og Freyju
sem eru öll farin í sumarlandið.

 

 

 

 


13 ára öldungar                                                                afmælisstrakar14.mars 2014

14.mars urðu Múla Týr og Múla Rökkvi 13 ára
Þeir eru tveir eftir úr goti undan Mysic Perlu og
Múla Berg.
Ég óska þeim og eigendum þeirra innilega til hamingju
með daginn.

HRFÍ sýning 5.mars 2022

Múla Kaldi vann rakkana með Alþjóðlegt stig.                                                    Besti rakki 5.mars 2022
Múla Jökull var í 4.sæti eftir að hafa unnið opna flokkinn.
Múla Gígur var í 5.sæti eftir að hafa verið í 3.sæti í mfl.
Múla Mystic Perla var í 2.sæti í opnum og ck.
Múla Héla fékk vg. og Múla Mystic Völva vildi ekki sýna sig.
Múla Tara var þreytt þennan dag en fékk ex og 3.sæti í öld.
Fékk heiðursverðlaun fyrir ræktunar hópinn; Tara, Gígur
Jökull og Kaldi.

Deildarsýning Siberian Huskydeildar

Önnur deildarsýning Siberian Huskydeildar var  4.mars sl.                                                     Perla 2.besta tík
Það voru ekki sýndir margir Múlahundar.
Í rökkunum gékk Múla Jökli best, hann var 4.besti rakki sýningar
Múla Gígur fékk ex ck og varð í 4. sæti í meistaraflokki
Múla Mystic Perla vann opna flokkinn og varð 2. besta tík sýn.
Hún fékk Íslenskt meistarastig.
Múla Mystic Kul ex og 3.sæti í opnum, Múla Myrkva ex, Múla
Héla og Múla Mystic Völva vg.
Múla Tara vann öldungatíkur og Múla Dakota fékk ex.
Fengum heiðursverðlaun fyrir ræktunarhópinn með Múla
Mystic Perlu, Múla Mystic Kul og Múla Kalda
Einnig heiðursverðlaun fyrir afkvæmahóp, Múla Tara með
Múla Gíg, Múla Myrkvu og Múla Jökul.

Múlahundur 2021

Múla Kaldi varð stigahæstur árið 2021, þriðja árið í röð,
geri aðrir betur.      Kaldi mars 2022
Múla Loki var í öðru sæti og
Múla Jökull í þriðja sæti.
Ég óska eigendunum innilega til hamingju með þessa
flottu rakka.

 

Um Múlaræktun

Múlaræktun er staðsett á Gunnlaugsstöðum á Völlum 18 km frá Egilsstöðum.
Á Gunnlaugsstöðum búa Steindór V. Sigurjónsson og Hjördís Hilmarsdóttir og eru hundar aðaláhugamálið á bænum

Upplýsingar er hægt að nálgast í síma: 557-7241 og 899-5241 og einnig er hægt að senda okkur tölvupóst til icelandichusky[hja]gmail.com

Flokkar
Nýlegar athugasemdir